Blogg

23.7.2008

Heimleiðin góða.

Jæja, þá er ég komin heim frá Noregi, og ekki bara heim heldur mætt strax til vinnu! Haldið að það sé dugnaður.

Pabbi gamli orðinn fimmtugur, og öll herlegheitin í kring um það búin.
Ég komst stórslysalaust heim, fyrir utan að vera næstum því dáin á leiðinni, því loftræstingin í lestinni var biluð og það er ekkert grín að vera lokaður inni í litlu glerbúri með engum gardínum né gluggum í 5 klukkustundir í 25 stiga hita og massívri sól.

Enda var það fyrsta sem ég gerði áður en ég fór í næstu lest var að fara á klósettið og skipta um föt því þau sem ég var í voru gegnvot! Ég hafði 25 mínútur til þess, hljóp að salerninu, en þá var einhver bölvuð vél þarna sem vildi taka 150 kr (ísl) fyrir það að fara á klóstið. Mér datt í hug að klifra bara yfir hana þar sem ég var ekki með klink en nei þá eru þeir líka með mann í vinnu sem að fylgist með því að maður borgi í vélina! þannig að ég þurfti að hlaupa til baka í hraðbanka, fara í búð og skipta peningnum og borga síðan í þessa blessuðu vél og fara svo inn á salernið. Þar sem maður borgar fyrir að fara inn á þetta salerni þá gerði ég nú ráð fyrir að það væri frekar þrifalegt, en nei, þetta klósett var eins og Osama Bin Laden hafi flogið flugvél fullri af kúk og túr inn í bygginguna. Oj bara.
En jæja þegar ég var búin með 20 mínútur af þeim 25 sem ég hafði, uppgvötaði ég að ég hafði litið vitlaust á lestarplanið og mín lest færi eftir eina mínútu, svo ég fann rétt brautarnúmer og hljóp eins og geðsjúklingur og rétt náði inn í lestina. Það hefði nú verið kostulegt fyrir mig að taka vitlausa lest, svona í ljósi þess hve öflugur túristi ég er, en þetta hófst og ég komst á flugvöllinn í heilu lagi og á réttum tíma, með ALLT dótið mitt.

Ég veit, þetta er kraftaverk.

Og svo er maður að fara til Thailands, ég veit ekki hvernig það á eftir að verða haha, en ég verð nú ekki ein á ferð þar svo þetta ætti að reddast ;)



Skrifað 23.7.2008 kl. 13:23 af Andrea

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.7.2008

Ævintyri i noregi og thailandsferd a dagskra!

Fyrst ætla eg ad byrja a tvi ad afsaka stafsetninguna, en eg er ekki islensku lyklabordi buin her i Noregi.

Eg kom hingad til pabba ovænt tar sem hann vard fimmtugur i vikunni. Pabbi vissi ekki ad eg ætladi ad koma. Tegar eg kom a gardemoen flugvoll i Oslo ta akvad eg ad taka lest til kristiansand. Eg var svo mikill KLAUFUS ad eg helt eg hafdi sett veskid mitt i pokann sem eg var med ur frihofninni, svo tegar ad lestin kom ta tok eg bara pokann upp og settist inn og svo keyrdum vid af stad og eg sa bara utum gluggan tar sem ad veskid mitt stod eftir eitt og yfirgefid a planinu, med øllum minum skilrikjum, tar a medal vegabref, og svo simi og adrir mikilvægir hlutir.
Sem betur fer helt eg a lestarmidanum svo eg akvad ad best væri ad halda bara afram og vona tad besta, ekki gat eg stoppad lestina? Eg reyndar hoppadi ut i næsta stoppi i panikkasti, en ungur madur, sem eg var buin ad segja raunarsogu mina dro mig inn aftur og sannfærdi mig um ad halda afram.
Svo afram helt eg minni ferd, peningalaus, skilrikjalaus og simalaus, og tad var verst ad pabbi vissi ekki ad eg var a leidinni. Eg gat synt fram a ad eg væri a lifi tar sem eg andadi enn, en eg gat ekki sannad tad a pappirum.
Allt i einu mundi eg ad eg var ekki med neinn pening til ad taka rutuna fra kristiansand til pabba, eg sa fram a ad verda gøtu-roni i midbæ Kristiansand, tar sem eg var føst i landinu, gat ekki sannad hver eg var, atti engan pening, og pabbi vissi ekki af mer!
Ungi madurinn i lestinni kom med ta hugmynd ad eg gæti tekid leigubil til pabba, og ta gæti hann borgad farid tegar eg kæmi.
Ja, eg sa tetta fyrir mer! "Surprise pabbi EG er komin!  En adur en vid holdum lengra, gætiru ta farid og borgad leigubilinn sem bidur her fyrir utan??":D Ja... nei.
Sem betur fer ta sendi modir min systkinum minum skeyti og let tau vita ad eg kæmi kl. tad sem eg kom, og tegar eg, ahyggjufullur turistinn steig ut ur lestini, ta stodu tau tar. Heppin eg ad eiga svona god systkini.
Tad er nu reyndar ordid frægt hvad hann pabbi sagdi, tegar eg upplysti hann um ofarir minar a leidinni. "Tu? Eg hefdi truad tessu upp a Unni systur tina, en ekki thig Andrea!". Hun er longu ordin fræg fyrir ad tyna ollu t.a.m. sjalvri ser. Oft.

Annars skiladi veskid ser, ad lokum. Eg er svo heppin eg, ad tad ætlar ekki yfir mig ad ganga, sidustu manudir hafa verid hreint ævintyri. Eg a bara eftir ad velja mer felaga til ad koma med mer i dekurferd til solarlanda, og svo erum eg og Stefan sambylismadur minn ad skipuleggja ævintyraferd til Thailands, i thrja manudi minnst, takk fyrir :D Klappa tigrum, fara a filabak, knusa apa og KAFA, lata sersauma a okkur fot og versla eins og gedsjuklingar i BANG KOK. Ef fleirum langar ad koma med ta bara latid mig vita, tetta verdur geggjad. ;)

Myndir fra Thailandsferdinni hans Arons:






Skrifað 20.7.2008 kl. 17:56 af Andrea

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 2
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 36345
Samtals gestir: 10784
Tölur uppfærðar: 13.3.2010 08:06:02