Blogg

28.5.2008

HERKÚLES

Haraldur frændi minn átti fugl í um tvö ár. Hann var af African Grey kyni og fékk nafnið Herkúles, jafnvel þó hann sé að öllum líkindum kvenkyns. Ég hef verið mikið inn á heimili Haraldar og verið með börnin hans, og þegar mest var lá við að ég byggi heima hjá þeim. Svo ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Herkúles mjög vel.
Herkúles  er enginn venjulegur fugl. Hann talar og talar og talar og talar, hann hefur pikkað upp hljóð allt frá dómaraflautu í fótboltaleik upp í adams fjölskyldulagið.
Herkúles þekkti okkur á heimilinu í sundur og með nafni, Halla, Jóhönnu, Stefán, Dísu (hundur) og mig. Hann þekkti alla fasta liði eins og venjulega á heimilinu, og hann skipaði Stefáni í háttinn á réttum tíma, hann huggaði Alexöndru ef hún grét, hann hóstaði eins og versti lungnasjúklingur, skammaði hundinn, og bauð mér iðulega út að reykja, enda hélst það ekki lengi leynt innan fjölskyldunnar að ég reykti eftir að Herkúles kom í fjölskylduna. Hann forvitnaðist hver væri að koma ef einhver gekk inn um hurðina. Hann kvaddi mann einnig ef hann sá að maður var að fara út. "Bless!" sagði hann og oftar en einu sinni ef hann fékk ekki kveðju tilbaka. Hann skammaði mig ef ég fór ekki á fætur við vekjaraklukkuna mína þegar ég var á prófatímabili, hann geyspaði rosalega á morgnana og á kvöldin, hann lét vita áður en hann kúkaði (stundum reyndar eftir hehe), og kallaði á mann með nafni ef maður hvarf úr augsýn.
Því miður var Haraldur með þrálátt ofnæmi fyrir fuglinum og eftir að hafa reynt allt til þess að geta haldið Herkúles endaði það þó þannig að hann varð að fara til nýrrar fjölskyldu.
Afhverju er ég að skrifa um hann núna? Það er vegna þess að ég rakst á myndband af honum á youtube þar sem hann hermir eftir einum frægasta lögreglumanni þjóðarinnar fyrr og síðar. GASmann. Þegar ég sá þetta myndband og heyrði hann þar einnig segja fullt af gömlu frösunum sem ég þekki, þá bara varð ég eirðarlaus af söknuði. Ég gat ekki einu sinni haldið aftur af tárakirtlunum og ég græt þó ekki oft. En ég er samt svo glöð að heyra í honum, heyra talstöðvarröddina hans aftur og vita að ég geti svona fylgst með honum og nýju orðunum hans úr fjarlægð þegar að nýju eigendurnir setja inn myndbönd af honum á netið.
Ég er ekki hissa á að fólk haldi að myndböndin af honum séu fake.. Þetta er ótrúlegur fugl, þegar ég sagði sögur af uppátækjum Herkúlesar við vini mína þá voru nú margir skeptískir á sannindi hetjusagnanna af þessum fugli. En svona er hann nú, hann á eflaust eftir að verða frægur einn daginn þessi elska.

Ef þið viljið skoða myndbandið af honum að herma eftir gasmann þá er slóðin þessi:
http://www.youtube.com/watch?v=Q8igA8ZORE4

og hér er annað þar sem er bara hefðbundin munnræpa:
http://www.youtube.com/watch?v=qqrQuIEbJBE

Og já trúið eigin augum. Þetta er hinn eini sanni Herkúles minn. :)

Skrifað 28.5.2008 kl. 1:04 af Andrea

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.5.2008

- og - = + .. Margt til í því!

Vá það er svo mikið sem hefur á daga mína drifið síðan síðast, að ég veit ekki hvar ég á að byrja, og svo hef ég bara korter til að skrifa þetta þar sem ég þarf að skreppa þá.

Að taka pásu frá skóla er það besta sem hefur komið fyrir mig, ég er komin með algjörlega nýja stefnu í lífinu. Ég veit að með þessu er ég búin að valda einum fjárfestingabanka sem var búinn að veðja á mig miklum vonbrigðum. Sorrý! En aldrei að vita hvort ég starfi þar þá bara annarsstaðar en á lögfræðisviði.
En hafið þið lent í svona mómenti þar sem að allt sem manni fannst maður hafa gert vitlaust, rangar ákvarðanir og gjörðir, urðu allt í einu að þannig að manni líður eins og maður hafi gert allt nákvæmlega rétt í lífinu upp á hár?? Mér líður þannig. Ég veit hvað ég vil núna, og ég er með 100 % sjálfsöryggi í því sem ég ætla að gera!
Það er ansi mögnuð tilfinning, sérstaklega eftir síðustu mánuði þar sem mér finnst ég vera búin að gera hver mistökin á eftir öðrum, en þau færðu mig samt bara í rétta átt eftir allt saman. Ég ætla samt aðeins að halda því fyrir mig hvað ég er að fara að gera.

Það má sko segja að fundur okkar Sævars forstjóra hafi fengið mig til að líta hlutina öðrum augum. Já, fyrir þá sem ekki vissu, forstjórinn bauð mér á fund með sér, enda hefur hann kannski ekki átt von á að peð í fyrirtækinu myndi þora að taka frumkvæðið og segja æðsta yfirmanni sínum hvernig ætti að gera hlutina hehehe. Hann var líka svo ánægður þegar mín aðferð skilaði honum árangri að ég fékk high five ;)

En jæja meira síðar, ég verð að fara! Og bannað að setja út á stafffseniNgarvidlur strax, á eftir að lesa yfir þetta, hef ekki tíma núna! :)

Skrifað 12.5.2008 kl. 17:10 af Andrea

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 5
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 37000
Samtals gestir: 10800
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 01:21:41